Þjónustuskilmálar

Lengra ehf., kt. 520517-1700 vsk.nr. 128301, hér eftir „DURA“, leggur sig fram eftir fremsta megni við að aðstoða og þjónusta viðskiptavini eftir bestu getu.

Fyrirvari
Allar upplýsingar á þessari vefsíðu, www.teamdura.is, eru birtar með fyrirvara um villur.
DURA áskilur sér rétt að hafna pöntunum eða breyta afhendingartíma ef nauðsyn krefur

Gagnavistun
DURA geymir öll gögn sem kaupandi hakar í við kaup á vörum.
DURA deilir ekki þessum gögnum til þriðja aðila í samræmi við persónuverndarlög.

Afhending vöru
Öllum pöntunum er dreift af Dropp.
Eftir að pöntun fer frá DURA liggur ábyrgðin hjá Dropp. Ef sending glatast eða skemmist skal viðtakandi pöntunar hafa samband við Dropp og krefjast endurgreiðslu eða fá bætur fyrir það tjón er orðið hefur eða endurgreiðslu. DURA tekur ekki þóknun/gjald fyrir að þjónusta vefpantanir. Viðskiptavinir greiða einungis verð vöru ásamt sendingargjald skv. Dropp hverju sinni. Skilmálar Dropp eru aðgengilegir á vefsíðu Dropp.

Pantanir sem berast Dropp fyrir klukkan 12:00 á virkum dögum er hægt að fá sent eða afhent,

  • Á afhendingarstaði Dropp á höfuðborgarsvæðinu – tilbúið 17:00 samdægurs.
  • Á afhendingarstaði Dropp á suðvesturhorninu – tilbúið 19:00 samdægurs.
  • Á afhendingarstaði Dropp á öðrum stöðum – tilbúið eftir 1-2 daga.
  • Heimsending á höfuðborgarsvæðinu (kvölddreifing) – afhent á milli 18:00 – 22:00 samdægurs.
  • Heimsending á suðvesturhorninu (kvölddreifing) – afhent á milli 18:00 – 22:00 samdægurs.
  • Heimsending á höfuðborgarsvæðinu (dagdreifing) – afhent á milli 10:00 – 16:00 næsta virka dag.

Pantanir sem berast eftir klukkan 12:00 á virkum dögum verða sendar út næsta virka dag*.

* Í sumum tilfellum gæti verið að sendingar sem berast eftir 12:00 gætu náðst í samdægurs sendingu, ef til þess kemur munum við senda út pantanir sem allra fyrst.

Skilafrestur
Ekki er boðið upp á skil á vörum DURA á grundvelli þess að seldar eru duftblöndur ætlaðar til neyslu. Þetta er gert sem varúðarráðstöfun.

Gölluð vara
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn í samræmi við lög um neytendaábyrgð.

Birt verð
DURA áskilur sér rétt til verðbreytinga innan netverslunar án sérstaks fyrirvara.

Tilkynningar

Með því að samþykkja þessa skilmála veitir þú DURA leyfi til að senda þér tölvupóst eða smáskilaboð í síma í markaðslegum tilgangi (með möguleika á afskráningu póstlista).
DURA hefur leyfi til að senda þér rafrænar tilkynningar á það netfang og eða símanúmer sem notandi hefur gefið upp í viðskiptum við DURA. DURA ber ekki ábyrgð á og er ekki skaðabótaskylt vegna þeirra tilkynninga sem DURA kann að senda þér, hvorki vegna innihalds né vegna þess að tilkynningar berast ekki á réttum tíma.

Skattar og gjöld
Öll verð í netverslun og reikningar innihalda virðisaukaskatt.

Sendingarkostnaður
Sendingarkostnaður er birtur við pöntun vöru og fer eftir afhendingarmáta sem kaupandi velur.

Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Notkun á persónuupplýsingum
Tölvupóstar og fleira þess háttar úr kerfum okkar kunna að nota persónuupplýsingar á borð við búsetu, aldur, netfang eða viðskiptasögu (þessi listi er ekki tæmandi), til að útbúa viðeigandi skilaboð til meðlima póstlistans okkar. Þessar upplýsingar eru aldrei afhentar þriðja aðila. Meðlimir póstlista geta ætíð afskráð sig og þannig neitað fyrirtækinu um notkun slíkra upplýsinga.

Notkun DURA
Það er á ábyrgð neytanda að lesa sér til um innihaldsefni beggja bragðtegunda DURA Performance Drink Mix. Ef neytandi finnur fyrir ofnæmisviðbrögðum eða öðrum álíka líkamlegum viðbrögðum er það á ábyrgð neytandans.
Ef um gallaða vöru er að ræða er það á ábyrgð DURA að afturkalla þær vörur.

Varnarþing
Þessir skilmálar eru í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans, skal það rekið fyrir íslenskum dómstóli. Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um neytendasamninga nr 16/2016 og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 16/2016 byrja að líða þegar móttaka vöru á sér stað.

Gildistími

Skilmálar þessir eru gefnir út af Lengra ehf. og gilda frá og með 1. október 2025 og til þess tíma er nýir skilmálar taka gildi.


Við kaup á vöru er kaupandi að samþykkja alla ofangreinda skilmála.